Karfan er tóm
Harvy vatnsræktunarkassi frá Nelson fyrir 3 plöntur.
Innifalið er ræktunarkassinn, flaska af næringu fyrir vatnsræktun, kókostöflur með fræjum í plasthólki. Lýsing er seld sér.
Sjá leiðbeiningar hér að neðan.
1. Veljið ákjósanlega staðsetningu fyrir Harvy.
2. Fyllið Harvy af vatni. 4 lítrar fara í Harvy 3 og 9 lítrar í Harvy 6 (mælistika í kassa).
3. Bætið næringarefni í vatnið. 8 ml fara í Harvy 3 og 18 ml í Harvy 6.
4. Setjið forsáðu kókostöflurnar í plast/neta pottana og fjarlægið verndarlímmiða af töflunum.
5. Komið pottunum fyrir í götunum á kassanum.
6. Staðsetjið ljósið u.þ.b. 10 cm fyrir ofan lokið á kassanum.
7. Kveikið á ljósinu í 12-16 tíma á dag og fyllið á vatn og næringu eftir þörfum.
8. Bíðið spennt í um 3 vikur og njótið svo uppskerunnar. Þegar búið er að klára uppskeruna þarf að kaupa nýjar kókostöflur til að hefja næstu ræktun. Hægt er að velja um forsáðar töflur eða prófa sig áfram með fræ að eigin vali.
Skiptiborð: 540 3300
verslun@gardheimar.is
Opið frá kl 10 - 21 fram til jóla
STIHL verslun opin frá kl 8.00-16.00 alla virka daga