Indoor +7

Indoor +7
Indoor +7

Indoor +7

Royal Canin

Þurrfóður fyrir inniketti eldri en 7 ára

Heilbrigðari öldrun

Hjálpar fullorðnum köttum eldri en 7 ára að takast á við byrjun á öldrunareinkennum. Inniheldur aðlagað magn vítamína, steinefna og annarra mikilvægra efna, m.a. grænt te, fjölfenóla og C-vítamín sem eru allt sterkir andoxarar (þráarvarnaefni) og EPA/DHA fitusýrur sem smyrja liðina og draga úr verkjum.

Dregur úr lykt af hægðum

Minni hreyfing innikatta getur leitt til hægari þarmahreyfinga sem ýtir undir sterkari lykt af hægðum. Fóðrið inniheldur sérstaklega auðmeltanleg prótein (L.I.P) og hæfilegt magn trefja til þess að styðja við meltingarveginn og hvetja til aukins hraða í meltingunni.

Nýrnastarfsemi

Skert starfsemi nýrna er algeng í eldri köttum. Fóðrið inniheldur aðlagað magn fosfórs sem minnkar álag á nýrun og styður þar með við heilbrigða nýrnastarfsemi.

Heilbrigðir liðir

Í Indoor þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Næringargildi

Prótein: 27% - Fita: 13% - Trefjar: 3.6% - Fosfór: 0.75% - EPA/DHA: 3.8 g/kg.

Stærð:

  • 1,5 kg pokar
  • 3,5 kg pokar
Vörunúmer RC229660
Verð samtals:með VSK
3.935 kr.
1,5 kg - 3.935 kr.
3,5 kg - 7.995 kr.