Karfan er tóm
Þurrfóður sérstaklega ætlað Pug hundum eldri en 10 mánaða
Aðlagað hitaeiningamagn stuðlar að viðhaldi heilbrigðrar þyngdar. Hæfilegt magn próteina sem styður við heilbrigðan vöðvamassa Pug hunda.
Pug fóðrið styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA), en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans, hjólkrónuolíu, vítamínum og steinefnum - húð verður sterkari og feldurinn fallegur og varnir húðarinnar því mun betur í stakk búnar til að takast á við hvaða áskorun sem er.
Fóðurkúlurnar í Pug fóðrinu eru því þannig að stærð og lögun að það er auðveldara fyrir hundinn að ná þeim upp. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Puginn til að tyggja, enda þeir þekktir fyrir að gleypa fóðrið sitt, og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.
Fóðrið stuðlar að bættri meltingu með góðgerlafæðu (FOS). Vinnur gegn of mikilli gerjun í þörmum og dregur þannig úr vindgangi og illa lyktandi hægðum - sem eru frábærar fréttir fyrir eigendur Pug hunda!
Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.
Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.
Prótein: 24% - Trefjar: 2.8% - Fita: 14%.
Tvær stærðir:
Skiptiborð: 540 3300
verslun@gardheimar.is
Opið frá kl 10 - 21 fram til jóla
STIHL verslun opin frá kl 8.00-16.00 alla virka daga