Smáhundakynning 17. - 18. september

Verið velkomin á Smáhundakynningu í Garðheimum helgina 17.-18. september frá kl 13 - 16. Þá mæta til okkar fjöldi skemmtilegra smáhundategunda og eigendur þeirra sem gaman að er að kynnast, s.s. Tibetian terrier, Shis tzu, Japanskur Spits og fleiri.

Einnig verða með okkur góðir gestir; Heiðrún Klara hundaþjálfari verður á staðnum með góðu ráðin ásamt dýralæknum, Dýrfinnu og Dýrahjálp Íslands. Þá verða fóðurkynningar á vegum Royal Canin, Hills og Belcando og því tilvalið að kynna sér hvaða fóður hentar þínu gæludýri best.

Að lokum verður lukkupotturinn sívinsæli á sínum stað með fjölda glæsilegra vinninga. Þá bjóðum við 20-50% afslátt af öllum gæludýravörum og fóðri frá 16.-19. september.

Afsláttarkóði á vefnum okkar er: HUNDAKYNNING

Hlökkum til að sjá ykkur á Smáhundadögum!